Nú er hafið nýtt tímabil hjá Nökkva. Greiðsla félags- aðstöðu og búnaðargjalds miðast við 1. apríl ár hvert. Best er að greiða þetta á Abler.io/shop/nokkvi hvort sem er með korti eða fá greiðsluseðill í heimabanka. Þessi gjöld standa undir kostnaði við að bæta aðstöðu fyrir félagsmenn, kaup á búnaði og félagsstarfi.
Félagsgjald er 5000 kr og gefur almenna aðil og afslátt af leigugjaldskrá félagsins. Félag- og aðstöðugjald 15000 kr. veitir aðgang að húsi og búningsklefum. Félags- aðstöðu og búnaðargjald 25000 kr. veitir aðgang að húsi, búningsklefum og notkun á búnaði félagsins eftir reglum hverju sinni.
Siglingaklúbburinn Nökkvi leitar að umsjónarkonu/manni með barnanámskeiðum félagsins sumarið 2024. Um er að ræða 90-100% starf eftir samkomulagi á tímabilinu 1. Júní til a.m.k. mánaðarmóta júlí- ágúst eða 16 ágúst.
Við leitum að ábyrgum einstakling 23 ára eða eldri sem á auðvelt með samskipti við börn og unglinga, getur unnið sjálfstætt og brennandi áhuga á útivist. Þekking og reynsla á siglingum og sjósportum er kostur. Þekking á Sportabler kostur.
Umsjónaraðili starfar í samstarfi við yfirþjálfara, þjálfara og formann félagsins. Góð starfskjör í boði. Umsóknarfrestur er til 5 apríl n.k.
Upplýsingar veitir Tryggvi formaður Nökkva í síma 898-3325 eftir kl. 14 eða siglingaklubburinn@gmail.com sendið umsókn á þetta netfang.