Nökkvi - Félag siglingarmanna á Akureyri

Nökkvi - Félag siglingamanna á Akureyri

Flýtilyklar

Nýjustu fréttir

  • Íslandsmótið á kænum 2018. Nökkvi siglingaklúbbur.

    Almennt - mánudagur 30.júl.18 18:56 - Rúnar Þór Björnsson - Lestrar 911 - Athugasemdir (0)
    Íslandsmótið á kænum verður haldið á Akureyri 10-12 ágúst nk. Hér má sjá tilkynninguna í heild.

  • Fullbókað á fyrsta námskeið Nökkva

    Almennt - fimmtudagur 7.jún.18 17:50 - Rúnar Þór Björnsson - Lestrar 1113 - Athugasemdir (0)
    Nú eru líflegar bókanir á sumarnámskeið siglingaklúbbsins Nökkva. Allt er fullt í næstu viku 11-15 júní en laust 18-22.

  • Heiðursfélagi og fyrsti formaður Nökkva Gunnar B Árnason kvaddur.

    Almennt - sunnudagur 8.apr.18 22:04 - Rúnar Þór Björnsson - Lestrar 4332 - Athugasemdir (0)
    Okkar ágæti vinur og félagi Gunnar B Árnason er látinn. Hann var fyrsti formaður siglingaklúbbsins Nökkva sem hét þá Sjóferðafélags Akureyr. Hann var ötull hvatamaður að stofnunar siglingaklúbbs ásamt fleiri góðum félögum á þessum árum rétt upp úr 1960 og með samvinnu og dugnaði þá var félagið stofnað 8. Okt 1963, fyrsta siglingafélag landsins sem á 55 ára afmæli á árinu. Félagið fékk afhent gamalt flugskýlið til afnota en það stóð neðan og sunnan við þar sem leikhús bæjarins stendur núna. Fljótlega var farið að gera aðstöðu fyrir félagið og smá saman tókst að öngla saman fyrir tveimur seglbátum en áður höfðu klúbbfélagar fengið lánaða seglskútu sem var í eigu einstaklinga en ekki var mikið um að siglt væri sér til skemmtunar á þessum árum. Gunnar fór fyrstur manna til Englands að kynna sér siglingar og og fékk til þess styrk frá sjálfu Evrópuráðinu til þessarar farar. Hægt væri að skrifa langa sögu um Gunnar og aðkomu hans af siglingastarfi á Akureyri en 2013 tók hann ásamt þeim Hermanni Sigtryggsyni og Dúa Eðvaldssyni, einnig heiðursfélögum Nökkva, fyrstu skóflustungu að nýju athafnasvæði siglingaklúbbsins Nökkva á leirunni. Einnig hélt hann á lofti sögu franskrar skútu sem var hluti af undirstöðu Tuliniusarbryggju á Nökkvasvæðinu sem er núna löngu horfin undir mikla uppfyllingu. Við kveðjum góðan vin og hugsjónamann um siglingar og sjósport á Pollinum, fyrsta formann Siglingaklúbbsins Nökkva. Jarðaför Gunnars verður á morgun mánudag 9. Apríl frá Akureyrarkirkju kl 13,30.

  • Nökkvi breytir um nafn á aðalfundi 2018

    Almennt - sunnudagur 4.mar.18 11:36 - Rúnar Þór Björnsson - Lestrar 1326 - Athugasemdir (0)
    Aðalfundur Nökkva haldinn 1. mars ákvað að breyta nafni klúbbsins í það sem hann hefur alltaf verið kallaður eða Siglingaklúbburinn Nökkvi. Gamla nafnið Nökkvi, félag siglingamanna Akureyri mun ekki vera notað meira. Nokkrir nýjir stjórnarmenn koma inn að þessu sinni, Kári Ellertsson siglingamaður er nýr í aðalstjórn og tveir nýjir koma í varastjórn Nökkva, þeir Björn Heiðar Rúnarsson og Örn Garðarsson. Nýtt lóga er í vinnslu á þessu 55 ára afmælisári Nökkva, elstan allra siglingaklúbba á landinu. Framundan er spennandi ár, nýbygging alveg að fara rísa og Íslandsmót kæna á Akureyri í Ágúst.

  • Uppskeruhátíð Nökkva sunnudaginn 8. okt. 2017

    Almennt - þriðjudagur 3.okt.17 10:44 - Rúnar Þór Björnsson - Lestrar 2683 - Athugasemdir (0)

    Sunnudaginn 8. okt nk. höldum við siglingafólk Nökkva uppskeruhátíð í Íþróttahöllinni kl 18. Einig er þetta afmælishátíð klúbbsins þar sem Nökkvi, áður Sjóferða félag Akureyrar, var stofnað 8.okt 1963.

  • Sumarnámskeið Nökkva hefjast 12.júní nk.

    Almennt - mánudagur 5.jún.17 17:23 - Rúnar Þór Björnsson - Lestrar 2215 - Athugasemdir (1)

    Sumarnámskeið Nökkva hefjast þetta árið mánudaginn 12 júní, nk.  Stæðsti hluti starfsmanna klúbbsins eru vinnuskólakrakkar og þau mega ekki byrja vinna  fyrr en 12. Námskeiðin standa fram í miðjan ágúst svo nóg pláss ætti að vera fyrir alla áhugasama yfir sumarið.  Nýr öryggisbátur verður tekin í notkun fljótlega, æfingar fyrir krakka eru hafnar en verða nú fast næstu 3 vikurnar á þriðjudögum og fimmtudögum 17-19,30.

    Sumarstarfsmenn munu allir taka eitt sérstakt öryuggisnámskeið í Nökkva og var fyristi hópurinn á námskeiði í síðustu viku og svo allir hinir í þessari viku eða byrjun næstu.

     

     

     


  • Ný stjórn Nökkva 2017.

    Almennt - þriðjudagur 21.mar.17 09:21 - Rúnar Þór Björnsson - Lestrar 2805 - Athugasemdir (37)
    Ný stjórn Nökkva var skipuð á aðalfundi félagsins í gærkveldi. Inn koma tvær öflugar konur, Halla Garðarsdóttir og Helga Bjarkadóttir, Hrönn Ásgeirsdóttir er fyrir í stjórn svo aftur eru fleiri konur en karlar sem stýra Nökkva. Ragnar Rúnar Svavarsson er einnig nýr en formaður er sem áður, Rúnar Þór Björnsson og þá eru þrír Rúnarar í stjórn. Varastjórnina skipa Rúnar A Harðarson og Lilja Gísladóttir. Framhaldsaðalfundur verður þriðjudaginn 28 mars þar sem farið verður yfir reikninga félagsins. Framundan eru spennandi tímar með nýju fólki, framkvæmdir að hefjast og heilt siglingasumar framundan.  

  • Siglinganámskeiðin hafin.

    Almennt - þriðjudagur 7.jún.16 21:57 - Stefna ehf - Lestrar 26032 - Athugasemdir (4093)

    Það er búið að vera mikið af krökkum í Nökkva sl vikur, margir skólar víða af landinu hafa verið í heimsókn og skólahópar úr Síðuskóla og Giljaskóla og ekki má gleyma Hríseyjarskóla voru í síðustu viku.  Námskeiðin hófust núna 6 júní og fara vel af stað. Kjölbátanámskeið fyrir fullorðna eru einnig hafin.  Hér á heimasíðunni undir námskeið eru nokkuð góðar upplýsingar um námskeiðin, klæðnað og fleira.  

    untitled1_400 

     


  • Ný stjórn Nökkva 2016.

    Almennt - miðvikudagur 2.mar.16 20:54 - Rúnar Þór Björnsson - Lestrar 3720 - Athugasemdir (0)
    Aðalfundur Nökkva var haldinn í kvöld 2.mars.  Nýjir stjórnarmenn komu í hópinn, Lilja Gísladóttir siglingakona og Stella Pauli, Pólsk kappróðrarkona, svo nú í fyrsta skipti að haldið sé, eru konur í meirihluta í stjórn Nökkva.  Rúnar Harðarson og Hrönn Ásgeirs halda áfram og svo formaður áfram Runar Þór.  Stjórnin þakkar fyrri stjórnarmönnum góð störf fyrir klúbbinn en mörg mikilvæg verkefni bíða nú úrlausnar.  Stjórn og bygginganefnd hafa nú heimild aðalfundar að semja um kaup/byggingu á bátahúsinu sem hefur verið á teikniborðinu um tíma og verður farið í það verkefni næstu daga.  Búið er að semja við  siglingaþjálfara fyrir sumarið en það er ungur maður frá Svíþjóð sem verður 6  vikur þetta ár og allt næsta sumar ef vel gengur.  

  • Aðalfundur Nökkva 2016.

    Almennt - þriðjudagur 1.mar.16 10:07 - Rúnar Þór Björnsson - Lestrar 3743 - Athugasemdir (3)
    Við minnum félagsmenn á aðalfund Nökkva sem haldin er miðvikudaginn 2. mars í húsnæði klúbbsins á Höepfnersbryggju kl 18..  Venjuleg aðalfundarstörf, farið yfir nýjar teikningar bátahúsins og nýr erlendur þjálfari kynntur.   Hvetjum félagsmenn til að mæta og fylgjast með hvað sé framundan. Kveðja stjórn Nökkva

  • Áramótakveðja formanns Nökkva.

    Almennt - miðvikudagur 30.des.15 11:30 - Rúnar Þór Björnsson - Lestrar 4378 - Athugasemdir (26)

    Ágætu félagsmenn Nökkva, siglingavinir, SÍL, framkvæmdaaðilar,  styrktaraðilar og forsvarsmenn íþróttamála.  Það er margt að þakka þegar litið ef yfir árið og talsvert  áunnist.  Talsverðar endurbætur voru á Höepfnersbryggju, landstöpull steyptur fyrir flotbryggjuna og landgangar á allar bryggjur gerðir og klárðað að hlaða varnargrjóti utan um.  Vegna mikils sigs varð að rétta eitt húsið heilmikið en hin látin vera óbreytt þar sem ekki svarar kostnaði að reyna rétta þau af.  Nýja athafnasvæðið var jafnað og klárað að hluta og einnig var steyptur stór og mikill rampur/skábraut.  Námskeið sumarsins gegnu vonum framar þrátt fyrir kaldasta sumar  sl 20-30 ára en fækkað hefur því miður í æfingahópnum og verður það helsta verkefni stjórnar á nýju ári að reyna að bæta úr því.  Unnið er að nýjum teikningum af fyrsta húsinu sem rísa mun á nýja athafnasvæðinu en það er bátaskýlið og ætti það að verða fokhelt fyrir næsta vetur.

    Jólagjöf ársins var veglegur styrkur Samherja sem úthlutað var við hátíðlega athöfn rétt fyrir hátíðina og sendum við þeim þakkir og árnaðar óskir á nýju ári eins og öllum öðrum sem hjálpuðu okkur eins og verktakarnir Skútaberg, Finnur EHF, Halldór Bald og fleiri.  Ég vil þakka stjórn og félagsmönnum gott starf á áriu sem er að líða, sérstakar þakkir fá þeir duglegu einstaklingar sem unnu í Nökkva í allt sumar og skiluðu miklu og óeigingjörnu starfi og skora á alla að standa að baki Nökkva næstu árin meðan uppbyggingin fer fram og koma okkur sterkum inn í framtíðina með glæsilega nýja siglingamiðstöð við Pollinn.  Rúnar Þór Björnsson formaður Nökkva, félags siglingamanna Akureyri.


  • Áramótakveðja formanns Nökkva.

    Almennt - miðvikudagur 30.des.15 11:26 - Rúnar Þór Björnsson - Lestrar 3939 - Athugasemdir (0)

Deildarval

Framsetning efnis

  • A-
  • A+

Innskráning

moya - Útgáfa 1.10 RC1 2006 - Stefna ehf