Flýtilyklar
Fréttir
Fleiri námskeið, konur á siglingu og seglbrettanámskeið.
Almennt - þriðjudagur 22.jún.10 20:43 - Rúnar Þór Björnsson - Lestrar 179 - Athugasemdir (0)Fjölbreytt námskeið eru að hefjast, eins og sjá má á heimasíðunni er kjölbátanámskeið að hefjast undir stjórn Benedikts og Jóns Magg.
Konur á siglingu er nýtt námskeið sérstaklega ætlað konum undir stjórn Herdísar Jónsd siglingakonu frá Ísafirði sem nú býr á Akureyri. Hugmyndin er að kenna á minni seglbáta klúbbsins, Topper Topas, Wayfarer og Askeladden og endað með ferð á flaggskipi klúbbsins, Paradís. Þetta verður 8-10 tíma námskeið sem keyrt verður 3 - 4 skipti á rúmri viku. Svona námskeið gefur fína innsýn í siglingasportið og þátttakendur geta auðveldlega handleikið minni seglbát upp á eigin spýtur að því loknu.

Ebba litla verður efnilegur siglari þegar fram líða stundir, hér við stýrið á Gógó.
Seglbrettanámskeið hefjast í vikunni, en Akureyri er eini staður landsins þar sem slík námskeið eru haldin. Námskeiðin verða 9 tímar, ca 2-3 tímar í senn á ca þremur dögum en best er að hella sér í þetta af krafti. Mjög misjafnt er hversu fljótt fólk nær árangri en klúbburinn á gott úrval seglbretta sem auðvelt er að byrja á. Blautgallar eru á staðnum og björgunarvesti. Áhugasamir sendið email á siglingaklubburinn@gmail.com eða hringið í síma 694-7509.
Seglbrettasiglingar eru frábært sport en eru talsvert krefjandi.
Leit
Nýtt á vefnum
- Skemmtilegt Akureyrarmót í strekkingi og kulda.
- Akureyrarmót í siglingum um helgina.
- Foreldrafundur hjá Nökkva á morgun þriðjudag og æfing allir hópar.
- Glæsilegu 3 daga Íslandsmóti í siglingum lokið.
- TILKYNNING UM KEPPNI / NOTICE OF RACE
- Veisla fyrir augað, ein með öllu á Akureyri.
- Kayak fjör alla helgina í Nökkva.
- Mikið fjör í Nökkva
Heimsóknir
Samtals: 779899

