Flýtilyklar
Fréttir
Mikið fjör í Nökkva
Almennt - miðvikudagur 21.júl.10 23:55 - Arnar Freyr siglari - Lestrar 232 - Athugasemdir (0)Margt hefur verið um manninn á báta á Pollinum nú að undarförnu og ekki var dagurinn í dag eitthvað síðri. Veðrið lék við okkur Nökkvamenn, 18°c mældust á mælunum og logn var í mest allan dag. Seglbátar, trillur, kayakar, mótorbátar og sjóflugvél skutu upp kollinum og allir höfðu gaman að.
Mæting á æfingar hjá iðkendum hefur verið að glæðast síðastliðnar vikur og hafa menn sem ekki hafa sést í mörg ár skotið upp kollinum og dustað rykið af skónum, og sýnt þessum strákum hvernig á að gera hlutina. Við þjálfarnir vonumst svo sannarlega eftir að æfingarstrákarnir fari að stunda siglingaríþróttina af kappi enda er minna en mánuður í Íslandsmótið sem haldið verður í þetta skipti hér á Akureyri.
Æfingafólkið gerði sér þó glaðan dag í tilefni veðursins, og skemmti sér konunglega á Pollinum nú rétt undir kvöldmat.
Farið var fyrst í keppni í hver gæti fyrstu sett upp bátinn sinn. Kom sá og sigraði í Optimistflokki Sigurður Séan með tímann 2 mín og 20 sek. Laserflokkinn sigraði Gauti Elfar á 4 mín og 30 sek og rétt á hæla honum kom Kristján Logi með tímann 4 mín og 46 sek.
En þar sem enginn var vindurinn þegar átti að fara út á sjó var gripið til tuðrunar góðu og dustað var rykið af Wakebrettinu.Haraldur Tryggvason, kafari og siglingarmaður með meiru kom með bátinn sinn Geira gráa, og sýndi okkur hvernig á að draga.
Myndirnar hér að neðan tala sínu máli 

Sjá Lesa meira til þess að skoða fleiri myndir
Leit
Nýtt á vefnum
- Skemmtilegt Akureyrarmót í strekkingi og kulda.
- Akureyrarmót í siglingum um helgina.
- Foreldrafundur hjá Nökkva á morgun þriðjudag og æfing allir hópar.
- Glæsilegu 3 daga Íslandsmóti í siglingum lokið.
- TILKYNNING UM KEPPNI / NOTICE OF RACE
- Veisla fyrir augað, ein með öllu á Akureyri.
- Kayak fjör alla helgina í Nökkva.
- Mikið fjör í Nökkva
Heimsóknir
Samtals: 779878

