Flýtilyklar
Fréttir
Siglinganámskeið fullorðinna 2010 - byrja eftir næstu helgi

Stefnt er að því að byrja námskeið fullorðinna 28. júní n.k. - 9. júlí.
Kennd verða helstu undirstöðuatriði siglinga á seglbátum s.s. að gera báta klára fyrir siglingu. Kennt á helstu stjórntæki skipsins, segl, vél og talstöð ásamt neyðarkalli. Farið yfir öryggisatriði um borð í íslenskum skipum og öryggistæki, gagnvart eldi, sjó, veðri og hugsanlegu strandi og árekstri ásamt MOB. Kenndir helstu hnútar og frágangur skips við bryggju og hvernig bátar eru bundnir þar með því að nota ,,spring". Fjallað verður um áhrif flóðs og fjöru ásamt hafstrauma. Helstu umferðareglur á sjó kynntar, bæði gagnvart segl- og vélbátum ásamt umferðarreglum skipa þar sem þrengt er að stjórnhæfni stærri skipa. þá skal nemanda kennt að leggja frá og að bryggju á vél.
Farið yfir kælingu o.fl. sem getur hent sjófarendur. Nemandi skal læra á þann björgunarbúnað sem er um borð skipsins geta sett út akkeri og sett upp segl í hvaða vindátt sem er. Nemandi þarf að kunna helstu nöfn skipshluta um borð bæði skrokks og reiða og önnur helstu heiti svo sem stjórn- og bakborða, kul- og hléborða svo eitthvað sé nefnt. Þá þarf nemandi að skilja hvernig seglabúnaður virkar og læra skýrar samskiptareglur um borð í skipum. Nemandi skal að loknu 10 tíma námskeiði hafa lokið ofantöldu og vera fær um að sigla kjölbátum Nökkva. Stefnt er að því að byrja námskeið 28. júní n.k. - 9. júlí. Verð hvers námskeiðs kr 20.000 sem greiðist við upphaf námskeiðs. Kennt verður á PARADÍS, flaggskip Nökkva. Skráning er á netfangið jonmagg@simnet.is eða í síma 8614321 fyrir 27. júní, 2010.Góða skemmtun með gott siglingasumar framundan.
ATH! þessi námskeið gefa ekki réttindi samkv. lögum um atvinnuréttindi skipstjóra í íslenskri landhelgi en er góður undirbúningur undir slíkt. Til þess að öðlast slík réttindi þarf einnig bóklegt nám í siglingarfræðum og er bent á að hafa samband við Jón Magg í síma 8614321, sem gefur nánari upplýsingar þar um.
Til baka
Leit
Nýtt á vefnum
- Skemmtilegt Akureyrarmót í strekkingi og kulda.
- Akureyrarmót í siglingum um helgina.
- Foreldrafundur hjá Nökkva á morgun þriðjudag og æfing allir hópar.
- Glæsilegu 3 daga Íslandsmóti í siglingum lokið.
- TILKYNNING UM KEPPNI / NOTICE OF RACE
- Veisla fyrir augað, ein með öllu á Akureyri.
- Kayak fjör alla helgina í Nökkva.
- Mikið fjör í Nökkva
Heimsóknir
Samtals: 779913

