Nökkvi - Félag siglingarmanna á Akureyri

Nökkvi - Félag siglingamanna á Akureyri

Flýtilyklar

Nýjustu fréttir

  • Skemmtilegt Akureyrarmót í strekkingi og kulda.

    Almennt - sunnudagur 29.ágú.10 00:03 - Rúnar Þór Björnsson - Lestrar 122 - Athugasemdir (4)

    Veðrið bauð upp á stífan norðanvind og talsverðan kulda þegar 16 siglarar frá Nökkva hófu keppni um kl 11 í morgun.  Talsverður hópur yngri siglara varð að sætta sig við að vera eftir í landi en vonandi verða þeir með næsta sumar og verða hörku siglarar.  Fimm umferðir voru sigldar og var súpan hennar Karenar í hléinu vel þegin af vindblásnum harðjöxlum.  Eftir hádegi var veðrið skaplegra og í heildina voru farnar 5 umferðir en keppt var í þremur flokkum, opnum flokki Laser siglara og Optimist A og B flokki.  Að venju var hörku barátta í öllum flokkum og ekkert gefið eftir.  

    img_2347_400_01

    Akureyrarmeistarinn og Íslandsmeistarinn Sigurður Sean í baráttu við Odd Malmquist.


  • Akureyrarmót í siglingum um helgina.

    Almennt - föstudagur 27.ágú.10 10:28 - Rúnar Þór Björnsson - Lestrar 54 - Athugasemdir (0)

    Akureyrarmótið í siglingum verður haldið laugardaginn 28 ágúst.  Skipstjórafundur kl 9.00 og fyrsta flaut kl 10.00.  Allir hvattir til að mæta og taka þátt í síðasta móti sumarsins í siglingum á Akureyri.  Krakkar sem voru á námskeiðum Nökkva í sumar og náðu vel að sigla eru boðin velkomin.  Hægt er að skrá sig með því að senda mail á siglingaklubburinn@gmail.com eða á skipstjórafundi á laugardag. Keppnisgjaldið er 1500 kr og greiðist á staðnum.  Landsbankinn gefur verðlaunapeninga og Halldór úrsmiður á Glerártorgi gefur úr í verðlaun.  Allir þáttakendur fá bíómiða frá Borgarbíói.  Flott þegar fyrirtækin standa svona vel við bakið á okkur.


  • Foreldrafundur hjá Nökkva á morgun þriðjudag og æfing allir hópar.

    Almennt - mánudagur 16.ágú.10 10:38 - Rúnar Þór Björnsson - Lestrar 111 - Athugasemdir (1)

    Fyrirhugað er að stofna foreldrafélag innan Nökkva og verður fundurinn haldinn í lítilli aðstöðu klúbbsins á Höepfnerstanga á morgun þriðjudag kl 17.  Um helgina kom berlega í ljós hversu lítilfjörleg aðstaða klúbbsins er og er ætlunin að ræða það hvort foreldrar geti þrýst á bæjaryfirvöld að gera úrbætur á svæðinu. 

    Æfingar allir hópar verður kl 17 á morgun þriðjudag og verða æfingar næstu 2 vikur fram að Akureyrarmótinu sem fram fer laugardaginn 28. ágúst nk.


  • Glæsilegu 3 daga Íslandsmóti í siglingum lokið.

    Almennt - mánudagur 16.ágú.10 00:21 - Rúnar Þór Björnsson - Lestrar 300 - Athugasemdir (3)

    Veðrið á Íslandsmóti siglingamanna á kænum lék stórt hlutverk í ár, allt frá blanka logni í hörku strekking sem lék keppendur grátt, sérlega þá yngri og reynsluminni.  En í dag sunnudag náðist að klára mótið með einni umferð í Optimist flokki og þremur í Laser standard, Opnum- og Topper Topazflokki.  Menningarhúsið Hof bjargaði verðlaunaafhendingunni en á síðustu stundu fékkst leyfi fyrir þátttakendur að stinga sér inn úr rigningunni og vosbúðinni á Nökkvasvæðinu í glæsilegt menningarhús Akureyringa.  Frábær þátttaka og frábært siglingafólk víða af landinu gerði mótið að besta og stærsta siglingaatburði síðari ára.  Öll úrslit eru komin á síðuna okkar, lestu lengra?  _mg_6123_400_01

    Saga Capital er nýr styrktaraðili Nökkva en hér sjást höfuðstöðvar félagsins á milli seglanna, velkomnir um borð hjá Nökkva nágrannar.


  • TILKYNNING UM KEPPNI / NOTICE OF RACE

    Almennt - þriðjudagur 3.ágú.10 21:13 - Arnar Freyr siglari - Lestrar 255 - Athugasemdir (0)

     Nökkvi, félag siglingamanna á Akureyri, tilkynnir hér með:


    Íslandsmót kæna verður haldið á Akureyri dagana 13. og 14. ágúst 2010

     

    Keppendur tilkynni þátttöku á emailið siglingaklubburinn@gmail.com, látið koma þar fram bátstegund, seglanúmer ef það er vitað eða nafn báts, nöfn keppenda. Keppnisgjald er 2000kr. á mann.

    Frekari upplýsingar heldur en eru gefnar hér að neðan fást hjá Arnari í síma 663-3667 eða Rúnari í síma 694-7509

    Sjá reglur hér að neðan í lesa meira.

     


  • Veisla fyrir augað, ein með öllu á Akureyri.

    Almennt - mánudagur 2.ágú.10 01:26 - Rúnar Þór Björnsson - Lestrar 253 - Athugasemdir (0)

    Það hefur vonandi engum dulist að bátalíf er í sókn hér á Akureyri.  Þáttaka bátaeigenda og Nökkvamanna í hátíðarhöldunum um Verslunarmannahelgina sýna það og sanna að bátalíf er mikið hér í bæ og á bara eftir að dafna. Siglingaklúbburinn Nökkvi er stór þáttakandi í þessari uppbyggingu og mikilvægt fyrir klúbbinn að fá stuðning til vaxtar, á Akureyri á að vera Sigling- og sjósportmiðstöð Íslands og það er nákvæmlega það sem stjórn Nökkva mun berjast fyrir. En myndir segja meira en mörg orð. njótið vel, glæsilegt Steini P og Magga Blöndal sem eigið heiður af þessu öllu.

    _mg_5907_400

    Frábær flugelda sýning Hjálparsveitarinnar með Húna í forgrunninn._mg_5914_400

    Seglskúturnar Gógó og Hróar í logandi ljósum.

    fleiri myndir á næstu síðu.


  • Kayak fjör alla helgina í Nökkva.

    Almennt - fimmtudagur 22.júl.10 08:31 - Rúnar Þór Björnsson - Lestrar 201 - Athugasemdir (0)

    Kayakdeild Nökkva stendur fyrir kayak samkomu í Nökkva um helgina, opið hús og kynning á laugardag frá kl 11-15.  Á sunnudag verður svo byrjendanámsskeið á 5000 kr þar sem farið verður yfir helstu atriði kayaksportssins.  Siglingamenn úr Nökkva verða líka á svæðinu og sigla með áhugasama.

    kajak24juli_400_02


  • Mikið fjör í Nökkva

    Almennt - miðvikudagur 21.júl.10 23:55 - Arnar Freyr siglari - Lestrar 233 - Athugasemdir (0)

    Margt hefur verið um manninn á báta á Pollinum nú að undarförnu og ekki var dagurinn í dag eitthvað síðri. Veðrið lék við okkur Nökkvamenn, 18°c mældust á mælunum og logn var í mest allan dag. Seglbátar, trillur, kayakar, mótorbátar og sjóflugvél skutu upp kollinum og allir höfðu gaman að.  

    Mæting á æfingar hjá iðkendum hefur verið að glæðast síðastliðnar vikur og hafa menn sem ekki hafa sést í mörg ár skotið upp kollinum og dustað rykið af skónum, og sýnt þessum strákum hvernig á að gera hlutina. Við þjálfarnir vonumst svo sannarlega eftir að æfingarstrákarnir fari að stunda siglingaríþróttina af kappi enda er minna en mánuður í Íslandsmótið sem haldið verður í þetta skipti hér á Akureyri.

    Æfingafólkið gerði sér þó glaðan dag í tilefni veðursins, og skemmti sér konunglega á Pollinum nú rétt undir kvöldmat.

    Farið var fyrst í keppni í hver gæti fyrstu sett upp bátinn sinn. Kom sá og sigraði í Optimistflokki Sigurður Séan með tímann 2 mín og 20 sek. Laserflokkinn sigraði Gauti Elfar á 4 mín og 30 sek og rétt á hæla honum kom Kristján Logi með tímann 4 mín og 46 sek.

    En þar sem enginn var vindurinn þegar átti að fara út á sjó var gripið til tuðrunar góðu og dustað var rykið af Wakebrettinu.Haraldur Tryggvason, kafari og siglingarmaður með meiru kom með bátinn sinn Geira gráa, og sýndi okkur hvernig á að draga. 

    Myndirnar hér að neðan tala sínu máli 35105_1430409753872_1041691679_31157639_3735466_n_40035085_1430407033804_1041691679_31157618_2152515_n_400

     Sjá Lesa meira til þess að skoða fleiri myndir


  • Uglan leggst að Torfunefsbryggjunni kl. 10 á Fimmtudag

    Almennt - miðvikudagur 14.júl.10 10:25 - Jón Magnússon - Lestrar 202 - Athugasemdir (1)
    ugla_400

    Samkvæmt samtali við Krumma Skipstjóra á Uglunni, sem nú er stödd norður af Langanesi, hefur ferðin verið eitt ævintýri og gengið á ýmsu. Tvisvar hefur þurft að leita til seglasaumara á leiðinni vegna þess að seglin rifnuðu í slæmu veðri. Tveir eru nú um borð, Krummi og Sigurður félagi hans. Gunni Larsen sigldi með þeim legginn Skotland-Færeyjar en kom þaðan fljúgandi heim. Áætlaður komutími verður kl. 10 á morgun, fimmtudag að Torfunefsbryggjunni. -JM


  • Uglan stödd út af austfjörðum

    Almennt - þriðjudagur 13.júl.10 14:45 - Jón Magnússon - Lestrar 201 - Athugasemdir (0)

    Nú styttist óðum í að Krummi á Uglunni komi til Akureyrar. Ég var að skoða slóðina þeirra áðan og voru þeir þá staddir út af Austfjörðum á rífandi siglingu. Þeir koma þá væntanlega hingað í vikunni ef alt gengur að óskum. Fyrir þá sem vilja fylgjast með þeim er hér slóð sem hægt er að skoða og þá sést hvar þeir eru staddir. -JM

    http://share.findmespot.com/shared/faces/viewspots.jsp?glId=0DFqjPrb3Yr1bKfen4tdvs3nXhymSqCEW


  • Æfingabúðum Ýmis og SÍL lokið með glæsilegri keppni í lokin.

    Almennt - laugardagur 3.júl.10 22:17 - Rúnar Þór Björnsson - Lestrar 192 - Athugasemdir (0)

    Æfingabúðirnar hafa staðið yfir frá sl þriðjudegi og enduðu í dag laugardag 3 júlí með frábærum keppnisdegi á Fossvoginum.  Talið er að um 30 ár séu síðan svo margir siglarar hafi tekið þátt í siglingamóti hér á stór Reykjavíkursvæðinu. Frábært veður og góður byr var allan daginn og voru sigldar 4 umferðir. Nökkvamenn voru fjölmennir á æfingabúðunum og var árangurinn í alla staði mjög glæsilegur.  Björn Heiðar vann Laser standard með þá Gauta Elfar og Dag Daníels í 2-3 sæti. Þorlákur Sigurðs vann Laser 4,7 og bróðir hans, Siggi Sean vann í Optimist flokki A og Lilja Gísla varð í 3 sæti í Laser 4,7.  Nökkvamenn þakka fyrir frábæra viku, og fær siglingaklúbburinn Ýmir sérstakar þakkir fyrir afnot af aðstöðunni í nýja glæsilega klúbbhúsinu þeirra.   Myndir úr æfingabúðunum og keppninni á þessari slóð, gefðu því smá tíma til að hlaðast inn, þetta eru 930 myndir. Njótið vel.

    http://picasaweb.google.com/116615625571406760715/FingabuIrOgMotYmir2010?authkey=Gv1sRgCNnXjoPD3oS8igE#

    img_1269_400

    Fv. Arnar pabbi Breka, Lilja, Rúbína, Dagur, Arnar Freyr Þjálfari, Þorlákur, Kristján Logi, Sigurður, Gauti Elfar, Daníel, Björn Heiðar, Breki og Rúnar Þór formaður Nökkva.


  • Góður byr í seglin á sumarnámskeiðum Nökkva.

    Almennt - mánudagur 28.jún.10 22:28 - Rúnar Þór Björnsson - Lestrar 225 - Athugasemdir (0)

    Mjög góð þáttaka hefur verið á námskeiðum Nökkva sl vikur og enn eru margar vikur þar til við hættum um miðjan ágúst.  Fjöldi ungs fólks er að vinna í Nökkva í sumar og mörg verkefni í gangi eins og mála bæði hús klúbbsins. Nýtt hjá okkur í sumar er að krakkar geta nú komið staka daga á námskeið klúbbsins ef það eru laus pláss.  Síminn okkar er 6947509 og ef við svörum ekki strax þá sendið sms á númerið okkar.  img_0058_400

    Það var að vísu ekki mikill byr þessa stundina á leiðina yfir í Vaðlareitinn sl föstudag og ekki bærðist hár á höfði fram undir kl 11.

    img_0134_400

    Það er oft fjör í bátnum okkar Askeladden og þétt setinn bekkurinn.


Deildarval

Framsetning efnis

  • A-
  • A+

Innskráning

moya - Útgáfa 1.10 RC1 2006 - Stefna ehf