Nökkvi félag siglingamanna á Akureyri var stofnað 8. okt . 1963. Hlaut fyrst nafnið Sjóferðafélag Akureyrar sem síðar var breytt árið 1979 í Nökkvi, félag siglingamanna Akureyri. Félagið flutti 1981 í Tunnuverksmiðjuna og starfaði þar þangað til hún var rifin 1993. Eftir smá þvæling niður á Eyri flutti félagið loks í lítið hús við Höefpnersbryggju. Árið 2018 breytti klúbburinn nafni sínu í Siglingaklúbburinn Nökkvi.
Félagið er félag áhugafólks um sjósport hverskonar þó megin starfsemin undanfarin ár hafi verið skútusiglingar, kaja- og brettakróður og sumarnámskeið fyrir börn. Eitt megin markmið félagsins er að vinna að hagsmunum þeirra sem nota Pollinn og Eyjafjörðinn sem útvistarsvæði.
Við hvetjum alla áhugamenn um sjó- og vatnasport að taka þátt í félaginu og stuðla þannig að betri útivist og öryggi á Pollinum sem og öðrum höfum.