Æfingabúðir SÍL á Húsavík (Uppfært)

 

Æfingabúðir á Húsavík 27. júní til  1.júlí 2021. 

Æfingabúðamót 2.-3. júlí 2021

 

Dagskráin byrjar á mánudag 28. júní eftir hádegi og æft verður alla daga fram á fimmtudag en á föstudag og laugardag verður æfingabúðamót. Nánari dagskrá er að finna hér á eftir. Áríðandi er að fólk skrái sig fyrir þriðjudaginn 22. júní 2021. Nauðsynlegt er að skrá umsjónamenn/fararstjóra, þjálfara og þátttakendur

 

Aðstaðan: 

Siglingaaðstaðan á Húsavík er sandfjaran innst í höfninni. Sjósetning verður við Slippin á Húsavík. Gistiaðstaða fyrir þátttakendur og aðstandendur þeirra verður á Húsavík.  Þar verður aðstaða til morgunverðar og funda.  Stefnt er að bjóða upp á eldhús aðstöðu til að laga sér kvöldmat. 

Þeir sem eru í gistingu verða að koma með dýnur og annan viðlegubúnað sjálfir.   

 

 


Dagskrá: 

Sunnudaginn 27. júní er mæting til Húsavíkur byrjað verður á að sjósetja báta og er frjáls siglingtími þann daginn.  Um kvöldið verður farið yfir uppbyggingu vikunnar. Annars verða dagarnir skipulagðir í meginatriðum á eftirfarandi hátt: 

 

08:00 - 09:00 Æfing í sal / útihlaup

09:00 - 09:40 Morgunmatur 

09:40 - 10:30    Fundur um viðfangsefni dagsins  

10:30 – 11:00         Bátar gerðir sjóklárir 

11:00 - 13:00    Æfingar á sjó

13:00 - 14:00    Hádegismatur með léttum fundi á eftir

14:00 - 15:30    Æfingar á sjó

15:30 - 16:00    Millimál / kaffi

 

Föstudaginn 2. júlí og laugardaginn 3. júlí verður siglingakeppni, nánara fyrirkomulag kynnt síðar.  Dagskrá gæti þó litið út á þessa leið.

 

 08:00 - 09:00 Æfing í sal / útihlaup

09:00 - 09:45 Morgunmatur

09:45 - 10:00    Skipstjórafundur  

11:00 - Fyrsta viðvörunarflaut

13:00 - 14:00    Hádegismatur 

14:00 -     Fyrsta viðvörunarflaut

Millimál / kaffi þegar komið er í land

 

Frágangur og brottför sunnudaginn 3. júlí en ekki verður boðið upp á mat eða kaffi þann daginn.

 

Þjálfarar 

Yfirþjálfari koma frá Brokey og Nökkva en auk  þjálfarar frá siglingafélögunum á landinu og sameina þeir krafta sína í að gera þessa viku einstaklega skemmtilega og eftirminnilega. 

Þjálfarar sem taka þátt í æfingabúðunum munu taka þátt í þjálfun og vinna í samvinnu við yfirþjálfarann og fá þannig æfingu og leiðbeiningu um þjálfun. 

 

Matarmál    

Innifalið í þátttökugjaldinu er: 

Hádegisverður, t.d. súpa ofl.

Millimál / kaffi, t.d. brauð og ávextir 

Grillpartí fimmtudaginn 30. júní. (staðsetning nánar auglýst síðar)

 

 

Kostnaður 

Gjald fyrir æfingabúðir er fyrst og fremst matarkostnaður og laun yfirþjálfara gildir því einu hvort heldur sem gist er í sameiginlegri aðstöðu eða ekki.  Verð fyrir þáttakanda er…… krónur. (Sama gjald er fyrir aðstandendur og þjálfara) Hægt er fyrir aðstandendur að kaupa sig sérstaklega inn í grillpartíið.

 

 

Skráning 

Skráningin fer fram hjá félögunum og skulu þátttakendur tilgreina hvort þeir séu í gistingu í með hópnum eða annarsstaðar.  Sama á við um ábyrgðarmenn og þjálfara. 

Aðstandendur sem koma í heimsókn og vilja taka þátt í dagskrá æfingabúðann eru velkomnir en þurfa að skrá sig og greiða fyrir þáttökuna.

 

Félögin eru svo beðin um að koma skráningarlistum sínum til Siglingasambands Íslands aðila eigi síðar en 20. júní:  netfangið er sil@silsport.is

  

 

Ábyrgð

Félögin eru  beðin um að skaffa umsjónar og ábyrgðarmenn þeirra þátttakenda sem verða í gistingu í skóla. Það geta verið foreldrar eða aðrir sjálfboðaliðar á vegum félaganna. Þeir ábyrgðaraðilar sem koma með þátttakendur munu þurfa að sjá um morgunmat og kvöldmat skjólstæðinga sinna einnig getur þeim verið úthlutað minniháttar verkefnum á meðan á æfingabúðum stendur. 

 

 

   

Afþreying 

Fjölmargt er í boði á Húsavík og nágreni fyrir foreldra og aðstandendur.  Fjölmargir veitingastaðir eru í bænum auk safna og útivistarmöguleika. Nánari upplýsingar á íslensku má finna á http://www.visithusavik.com/is/discover