Byrjað að reisa siglingahöllina

Starfsmenn Sigurgeirs Svavarssonar ehf hófu í morgun að reisa nýja Nökkvahúsið. Bryrjað var á þeim hluta þar sem búningsaðstað verður. Hraði framkvæmda nú í desember mun ráðast af veðrinu. Þannig að nú vonumst við eftir hagstæðu veðri næstu vikur svo allt gangi að óskum.  Við kjör aðstæður má búast við að það taki um tvær og hálfa viku að ljúka uppsetingu húsins. Jólin koma svo sannarlega snemma í ár hjá siglingamönnum.