Framkvæmdir við aðstöðuhús.

Sælir félagar
Margir hafa verið að spyrja frétta vegna framkvæmda við nýtt hús félagsins. Málin standa þannig að korter í undiskrift og framkvæmdir var því frestað og bæjaráð ákvað að taka sér umhugsunar frests í eina til tvær vikur. Málið var ekki tekið fyrir á síðast fundi bæjaráðs en vonandi verður málið tekið fyrir í næstu viku. Málið er að sjálfsögðu ekki af borðinu en það er ljóst öllu áhugafólki um útivist á Pollinum eða á Eyjafirði að þetta má nú ekki bíða mikið lengur. Allar tafir krefjast mjög dýra bráðabirgða aðgerða. Við öndum rólega þessa viku og vonum að bæjafulltrúar komist að réttir niðurstöðu fyrir klúbbinn og bæjarbúa alla sem er að drífa þessa framkvæmd áfram. En hvet alla félagsmenn og velunnara að gera það sem þau geta til að koma þessu yfir þröskuldinn.
Bestu siglingakveðjur
Tryggvi formaður Nökkva