Íslandsmót á kænum daganna 5-8. ágúst 2021

.                                                                              




Íslandsmót kæna 2021 

 5.- 8. ágúst á Akureyri

Siglingaklúbburinn Nökkvi

Tilkynning um keppni 

 

1. Reglur 

1.1 Keppt verður samkvæmt: gildandi kappsiglingareglum  WS

1.2 J1.1(3)* Keppni og samskipti í landi, sjósetningar, upptaka báta, þvottur búnaðar og notkun búningsklefa og annað fara fram með þeim opinberu takmörkunum vegna COVID-19 sem verða i gildi þegar keppnin fer fram. 

1.3 Keppnin verður ekki haldin ef keppnisstjórn hefur ekki yfirsjón yfir keppnissvæðið vegna skerðingar á skyggni. Keppnisstjórn miðar við að keppni fari fram við vindstyrk á bilinu 2-10 m/sek samkvæmt mælingum ISAVIA á Akureyrarflugvelli ásamt mælingum keppinsstjórnar.  

1.4 Ef tungumálum ber ekki saman skal enska útgáfa textans gilda. 

1.5 J1.2(8)* Þegar regla 20 gildir, má bátur gefa til kynna þörf fyrir rúm til að stagvenda t.d. með kalli eða bendingum.

 

2 KAPPSIGLINGAFYRIRMÆLI 

2.1 J1.3(3) Kappsiglingafyrirmælin verða kynnt á skipsstjórnarfundi. 

 

3 SAMSKIPTI 

3.1 J2.1(7) Keppnissjórn birtir upplýsingar á heimasíðu www.nokkvi.iba.is 

3.2 Keppnisstjórn notar rás 87 fyrir öll samskipti 

3.3 Á meðan á keppni stendur (tekur gildi við fyrsta viðvörunarflaut) mega keppendur ekki nota talstöðvar eða önnur samskiptatæki nema í neyðartilvikum og ef allir keppendur fá sömu upplýsingar. Þessi takmörkun gildir einnig um farsíma 

 

4 HLUTGENGI OG ÞÁTTTAKA 

 

4.1 J1.1(4)* Rétt til þátttöku hafa fullgildir félagar í siglingafélögum samkvæmt móta- og keppendareglum SÍL. 

Stefnt er að keppni í eftirfarandi flokkum: 

1. Optimist 

2. Laser 4,7 

3. Laser radial 

4. Laser standard 

5. RS Tera

6. Opnum flokki samkvæmt forgjöf 

 

Verði þátttakendur í einhverjum flokki færri en fimm verður sá flokkur hluti af opnum flokki með forgjöf. Í forgjafakeppni á flokknum sem hafa Portsmouth yardstick er hún notuð eða forgjöf sem SÍL samþykkir ef bátur er ekki á lista Portsmouth yardstick 

4.3 Portsmouth yardstick forgjöf er notuð, ef bátur er ekki á listanum verður haft samband við SÍL og fengin forgjöf sem SÍL samþykkir. 

4.5 J1.1(5)* Hlutgenga báta má skrá með því að senda tölvupóst á siglingaklubburinn@gmail.com með staðfestingu á greiðslu þátttökugjalds og upplýsingum um nafn keppanda, kennitölu, bát, seglanúmer og félag sem keppt er fyrir ásamt upplýsingum um nafn og símanúmer forráðamanns ef keppandi er yngri en 18 ára fyrir 29.07.2021. Ath. bátar verða að hafa seglanúmer.

4.7 Skráning telst ekki gild fyrr en öllum skráningar skilyrðum er fullnægt og þátttökugjald hefur verið greitt. 

 

5 ÞÁTTTÖKUGJALD 

5.1 J1.1(5)* Þátttökugjald á hvern keppanda er kr. 6000. Innifalið er grill eftir keppni. Gjaldið hækkar í kr. 8000 ef skráning berst eftir kl. 21:00 þann 5. ágúst 

Gjald greiðist inn á reikning: 0162-26-4231 Kt:. 450979-0319  kvittun sendist á siglingaklubburinn@gmail.com

 

6 AUGLÝSINGAR 

6.1 J1.2(5) Bátar gætu þurft að sýna auglýsingar sem skipuleggjendur velja og láta í té. 

 

7 TÍMAÁÆTLUN 

7.1 J1.1(5)* 

Svæði opnar fyrir æfingar 5. ágúst

Skráningafrestur rennur út kl. 13.00  6. ágúst

Skipstjórafundur kl. 13:00  6. ágúst

Viðvörunarmerki fyrir fyrstu keppni er áætlað kl. 13.45  Ekki verður ræst eftir kl. 18.00  Reynt að ná 3 umferðum.

Laugardagur skipstjóra fundur kl 10.00 Viðvörunarmerki fyrir fyrstu keppni verður kl. 10.30 Reynt að ná 4 umferðum.

Afhending verðlauna og grill fyrir þátttakendur verður að lokinni síðustu umferð.: 8. ágúst er varadagur 

 

8 STIGAGJÖF 8.1 J1.3(5) Notað er lágstigakerfi skv A4.1 í viðauka A 

8.1 Stefnt er að sigla 7 umferðir.  Ef kepptar verða þrjár eða færri umferðir, reiknast allar til stiga, annars kastar hver keppandi sinni lökustu keppni. 

8.2 Ljúka þarf amk 1 umferð til að keppni teljist lokið. 

 

9 PERSÓNUVERND 

9.1 J1.2(10) Með skráningu í keppni heimila þátttakendur myndbirtingar á vegum keppnishaldara og SÍL ásamt birtingu úrslita. 

 

10 TAKMÖRKUN ÁBYRGÐAR 

10.1 Keppendur sem taka þátt í mótinu gera það á eigin ábyrgð. Sjá reglu 3, Ákvörðun um að keppa. Skipuleggjendur firra sig allri ábyrgð vegna skemmda eða líkamstjóns eða dauðsfalla í tengslum við eða fyrir eða eftir keppni eða á meðan keppni stendur án tillits til orsakatengsla. 

 

11 TRYGGINGAR 

11.1 Hver bátur skal vera tryggður með gildri ábyrgðartryggingu sem bætir tjón. 

 

12 VERÐLAUN 

12.1 Veitt verða verðlaun fyrir þrjú fyrstu sætin í hverjum flokki. 

 

13 FREKARI UPPLÝSINGAR 

13.1 Frekari upplýsingar veitir Tryggvi í síma 898-3325

 

14. Þjálfara- og öryggisbátar

Óskað er eftir að félög sem senda keppendur yngri en 18. ára til keppni leggi til a.m.k. einn mann til að aðstoða við öryggisgæslu, jafnvel einn öryggisbát ef aðstæður leyfa. Þjálfara- og öryggisbátar skulu halda sér utan brautar og mega ekki hafa samskipti við keppendur þannig að það hafi áhrif á úrslit keppninnar.

 

Talstöðva samskipti fara fram á rás 87