Íslandsmót í siglingum á kænum 2022

Íslandsmót í siglingum á kænum fór fram í Hafnarfirði 4-6 ágúst. Aðstæður til keppni voru ágætar, góður vindur 2 fyrstu daganna en því miður  enginn vindur 3 daginn sem truflaði þó ekki gleði keppenda. Nökkvi sendi keppendur í til keppni í 3 flokkum af 4 sem keppt var í Rs Teva, Optimist og ILCA 6.  Þorlákur Sigurðsson frá Nökkva varð íslandsmeistari í ILCA 6 flokk með glæsibrag vann allar umferðir mótsins og  Kveldúlfur Snjóki Gunnarsson Nökkva varð íslandsmeistari á Rs Tera.  Aðrir keppendur stóðu sig einnig vel.  Elisabet Ósk Jónsdóttir var 2. í Rs Tera og Olaf Gnidziejko var í 3. sæti og Þórir Steingrímsson 4. í sama flokk. Mahaut Ingiríður Matharel varð 6. í  Optimist flokk.