Íslandsmót kæna 8-11 ágúst 2024

                                                              

 

Íslandsmót kæna 8.-11. ágúst 2024 

  á Akureyri

Siglingaklúbburinn Nökkvi

Tilkynning um keppni 

 

1. Reglur 

1.1 Keppt verður samkvæmt: gildandi kappsiglingareglum WS

1.2 Kappsiglingafyrirmæli SÍL , Móta og keppendareglur ÍSÍ

1.3 Ef tungumálum ber ekki saman skal enska útgáfa textans gilda. 

1. 4 Keppnin verður ekki haldin ef keppnisstjórn hefur ekki yfirsjón yfir keppnissvæðið vegna skerðingar á skyggni. Keppnisstjórn miðar við að keppni fari fram við vindstyrk á bilinu 2-10 m/sek hjá yngri en 16 ára en 2-13 m/sek hjá eldri siglurum, samkvæmt mælingum ISAVIA á Akureyrarflugvelli  ásamt mælingum keppinsstjórnar.  

1.5  Þegar regla 20 gildir, má bátur gefa til kynna þörf fyrir rúm til að stagvenda t.d. með kalli eða bendingum.

 

2 KAPPSIGLINGAFYRIRMÆLI 

2.1  Kappsiglingafyrirmælin verða kynnt á skipsstjórnarfundi. 

 

3 SAMSKIPTI 

3.1  Keppnissjórn birtir upplýsingar á heimasíðu www.nokkvi.iba.is 

3.2 Keppnisstjórn notar rás 87 fyrir öll samskipti 

3.3 Á meðan á keppni stendur (tekur gildi við fyrsta viðvörunarflaut) mega keppendur ekki nota talstöðvar eða önnur samskiptatæki nema í neyðartilvikum og ef allir keppendur fá sömu upplýsingar. Þessi takmörkun gildir einnig um farsíma 

 

4 HLUTGENGI OG ÞÁTTTAKA 

 

4.1  Rétt til þátttöku hafa fullgildir félagar í siglingafélögum samkvæmt móta- og keppendareglum ÍSÍ. 

Stefnt er að keppni í eftirfarandi flokkum: 

1. Optimist 

2. ILCA 4 

3. ILCA 6  

4. Rs Tera

5. Rs Feva

6. RS Aero

7. ILCA 7

8. Opnum flokki samkvæmt forgjöf 

 

Í forgjafakeppni á flokknum sem hafa Portsmouth yardstick er hún notuð eða forgjöf sem SÍL samþykkir ef bátur er ekki á lista Portsmouth yardstick 

4.3 Portsmouth yardstick forgjöf er notuð, ef bátur er ekki á listanum verður haft samband við SÍL og fengin forgjöf sem SÍL samþykkir. 

4.5  Hlutgengir keppendur skrá  sig á Abler.io/shop/nokkvi  Nánari upplýsingar gefnar í tölvupósti á siglingaklubburinn@gmail.com  Athugið að bátar verða að hafa seglanúmer. Best er ef þjálfari félags sendi lista yfir sína keppendur og seglanúmer. 

4.7 Skráning telst ekki gild fyrr en öllum skráningar skilyrðum er fullnægt og þátttökugjald hefur verið greitt og seglanúmer hefur borist keppnisstjórn..

 

5 ÞÁTTTÖKUGJALD 

5.1  Þátttökugjald á hvern keppanda er  11000 kr.  Gjaldið hækkar í  13000 kr. ef skráning berst eftir kl. 20:00 þann 6.  ágúst  2024 






6 AUGLÝSINGAR 

6.1  Bátar gætu þurft að sýna auglýsingar sem skipuleggjendur velja og láta í té. 

 

7 TÍMAÁÆTLUN 

7.1  Skráningafrestur rennur út kl. 12.00, 8. Ágúst 2024

Dagskrá móts:

Fimmtudagur 8. Ágúst. Viðvörunarmerki fyrir fyrstu keppni er áætlað kl. 17.30. Sigldar 1-2 umferðir, skipstjóra fundur kl. 16.45

Föstudagur 9. Ágúst. Viðvörunarmerki fyrir fyrstu keppni kl. 14.30 stefnt að því að sigla  2-3 umferðir, skipstjóra fundur kl. 13.45 

Laugardagur 10. ágúst Viðvörunarmerki fyrir fyrstu keppni dagsins kl. 11.00 stefnt að því að sigla 2-3 umferðir. Skipstjóra fundur kl. 10.15.

Sunnudagur 11. Ágúst er varadagur ef ekki hefur tekist að sigla 3 keppnir eða fleiri aðra keppnisdaga.

 

Afhending verðlauna og grillveisla verður að lokinni keppni þegar úrslit liggja fyrir.

 

8 STIGAGJÖF 

8.1  Notað er lágstigakerfi skv A4.1 í viðauka A 

8.2 Stefnt er að sigla 3-8 umferðir.  Ef kepptar verða þrjár eða færri umferðir, reiknast allar til stiga, annars kastar hver keppandi sinni lökustu keppni. 

8.3 Ljúka þarf amk 1 umferð til að keppni teljist lokið. 

 

9 PERSÓNUVERND 

9.1  Með skráningu í keppni heimila þátttakendur myndbirtingar á vegum keppnishaldara og SÍL ásamt birtingu úrslita. 

 

10 TAKMÖRKUN ÁBYRGÐAR 

10.1 Keppendur sem taka þátt í mótinu gera það á eigin ábyrgð. Skipuleggjendur firra sig allri ábyrgð vegna skemmda eða líkamstjóns eða dauðsfalla í tengslum við eða fyrir eða eftir keppni eða á meðan keppni stendur án tillits til orsakatengsla. 

 

12 VERÐLAUN 

12.1 Veitt verða verðlaun fyrir þrjú fyrstu sætin í hverjum flokki. 



13. Þjálfara- og öryggisbátar 

Félög sem senda keppendur yngri en 18. ára til keppni leggi til a.m.k. einn mann til að aðstoða við öryggisgæslu og einn öryggisbát. Þjálfara- og öryggisbátar skulu halda sér utan brautar og mega ekki hafa samskipti við keppendur þannig að það hafi áhrif á úrslit keppninnar.

 

Talstöðva samskipti fara fram á rás 87