Íslandsmótið á kænum 2018. Nökkvi siglingaklúbbur.

Íslandsmótið á kænum verður haldið á Akureyri 10-12 ágúst nk. Hér má sjá tilkynninguna í heild.
Íslandsmót Kæna 2018 10. til 12. ágúst á Akureyri Siglingaklúbburinn Nökkvi Tilkynning um keppni 1. Reglur Keppt verður samkvæmt: a. Kappsiglingareglum ISAF b. Kappsiglingareglum SÍL c. Kappsiglingareglum mótsins 2. Auglýsingar a. Auglýsingar verða leyfðar samkvæmt ISAF reglugerð 20 um auglýsingar b. Auglýsingar sem keppnishaldari útvegar kann að þurfa að sýna á bátum eða búnaði 3. Þátttökuréttindi Rétt til þátttöku hafa fullgildir félagar í siglingafélögum samkvæmt móta- og keppnisreglum SÍL. Stefnt er að keppa í eftirfarandi flokkum: a. Optimist A b. Optimist B c. Laser Standard d. Laser Radial e. Laser 4.7 f. Topper Topaz g. Opnum flokki samkvæmt forgjöf frá SÍL Verði þátttakendur í einhverjum flokki færri en fimm verður sá flokkur hluti af opnum flokki eða samkvæmt ákvörðun keppnisstjóra. 4. Skráning Skráningar berist til keppnisstjórnar fyrir 4.ágúst með tölvupósti á siglingaklubburinn@gmail.com. Taka þarf fram nöfn keppenda, seglanúmer, bátategund og félag sem keppt er fyrir. Þó er hægt að skrá allt fram að skipstjórafundi, þá hækkar þátttökugjald. 5. Þátttökugjald Þátttökugjald á hvern keppanda er 5000. Kr Gjaldið hækkar í kr. 7000 ef skráning berst eftir Mánudaginn 6.ágúst. Gjald greiðist á reikning: 0162-26-4231 kt. 450979-0319. Þátttökufélög eru beðinn um að greiða fyrir alla sína keppendur í einu fyrir 4. ágúst 2018. Skrá verður aðstandendur sérstaklega í grillveislu á laugardegi. Hámark 2 fyrir hvern keppenda. Verð á mann 1200 kr. 6. Tímaáætlun 10. ágúst: Skipstjórafundur kl. 16.00. Fyrsta viðvörunarmerki kl. 17.00. Ekki verður ræst eftir kl. 19:30 (stefnt að 1-3 umferðum) 11. ágúst: Skipstjórafundur 9.00. Fyrsta viðvörunarmerki 10.00. Ekki ræst eftir 16.30 (stefnt að 3-5 umferðum) 12. Ágúst: Varadagur ef ekki hafa náðst 5. umferðir. Skipstjóra fundur er kl 9.00 ekki ræst eftir kl. 14.00. Áætlað er að ná 7 umferðum. 7. Kappsiglingafyrirmæli Siglingafyrirmæli verða birt á tilkynningartöflu á mótsstað. 8. Keppnissvæði Keppt verður á Pollinum við Akureyri. 9. Keppnisbraut Keppnisbraut geta verðið eftirfarandi: Þríhyrningsbraut, Þríhyrningsbraut með pylsu, beiting-lens-beiting braut eða Trapizubraut með eða án pylsu eða samkvæmt ákvörðun keppnisstjórnar. Brautum verður nánar lýst í kappsiglingafyrirmælum. 10. Stigakerfi Notað verður lágstigakerfi samkvæmt viðauka A í Alþjóða-kappsiglingareglunum. Ef kepptar verða þrjár eða færri umferðir, reiknast allar til stiga, annars kastar hver keppandi sinni lökustu keppni. 11. Verðlaun Veitt verða verðlaun fyrir þrjú fyrstu sætin í hverjum flokki. 12. Verðlaunaafhending Verðlaunaafhending fer fram strax og úrslit verða ljós að lokinni síðustu umferð mótsins. 13. Ábyrgð Allir sem taka þátt í mótinu gera það á eigin ábyrgð. Sjá reglu 4. ákvörðun um að keppa. Keppnisstjórn ásamt öllum þeim sem taka þátt í framkvæmd mótsins firra sig allri ábyrgð gagnvart tjóni sem kann að verða vegna þátttöku í mótinu. 14. Þjálfara- og öryggisbátar Óskað er eftir að félög sem senda keppendur yngri en 18. ára til keppni leggi til a.m.k. einn öryggisbát. Þjálfara- og öryggisbátar skulu halda sér utan brautar og mega ekki hafa samskipti við keppendur nema í neyðartilvikum. Frekari upplýsingar Frekari upplýsingar fást hjá Rúnari Þór Björnssyni með tölvupósti á siglingaklubburinn@gmail.com Siglingaklúbburinn Nökkvi Akureyri Drottningarbraut – 600 Akureyri Reikn. 0162-26-4231 Kt.450979-0319