Komdu að sigla! Námskeið fyrir 15-23 ára

Nú er hægt að skrá sig á hásetanámskeið Nökkva fyrir 15-23 ára. Námskeiðin eru nemendum að kostnaðarlausu sem sagt frí. Námskeiðinn eru ætluð bæði byrjendum og þeim sem hafa farið á siglinganámskeið Nökkva á undanfarnum árum eða annara siglingaklúbba. Hvert námskeið eru 2-3 klst, svona ein kvöldstund. Þar læra nemendur helstu grunnþætti sem tengjast skútusiglinum. Markmiðið er að þau sem hafa náð tökum á siglingum á kænum geti eftir námskeiðið siglt minni kjölbátfélagsins og stórum kænum og að byrjendur geti verið í áhöfn kjölbáta og stærri kæna.
Upplýsingar og skárning hjá Tryggva í síma 8983325 einnig siglingaklubburinn@gmail.com