Námskeið í skyndihjálp

Skyndihjálp - 12 klukkustundir í samstafi við Rauða krossinn. Námskeiðið er ætlað öllum, 14 ára eða eldri sem vilja læra skyndihjálp og endurlífgun og öðlast öryggi, færni og þekkingu í að veita nærstöddum aðstoð í bráðatilfellum með því að beita á öruggan hátt einföldum aðferðum í skyndihjálp. Námskeiðið verður sérsniðið að þörfum félagamanna Nökkva og annara þátttakanda. Við skráningu getið þið komið með ósk um ákveðna þætti sem þið viljið að farið sértaklega vel yfir. 

Hvenær: 5. & 6. mars frá kl 11-17 báða daga. Staðsetning: Nökkvahöllin, Drottningarbraut

Almennt verð: 18.000 kr. Verð fyrir félagsmenn Nökkva: 15.000 kr

Sigrún Björg Aradóttir heldur utan um skráningu - sigrun@agndofa.is | sími 820 4808 ATH: 15 manna fjöldatakmörk.