Siglingaæfingar og Nökkva æfingabúðir 21-22 maí.

Nú stefnir í að veðrið fari að verða okkur hliðhollt. Við byrjum þetta af krafti, það verða æfingar mánudaginn 16. maí og miðvikudaginn 18. maí klukkan 16.30(mæting) á sjó kl. 17.00 síðan verður stefnt á æfingabúðir í Nökkva 21-22 maí kl. 09:30 til 16.00. Þjálfari æfingabúða  verður Hörður Finnbogasson sem meðal annars hefur starfað fyrir Nökkva og þjálfað landslið Íslands í siglingum. Hvetjum alla til að nýta þessar æfingar og koma sér í siglingagírinn.  Nánari upplýsingar gefur Tryggvi formaður, siglingaklubburinn@gmail.com eða á facebook.