Siglinganámskeið á kjölbátum

Siglingaklúbburinn Nökkvi stendur fyrir námskeiðum í skútusiglingum fyrir fullorðna sumarið 2025. Þessi námskeið eru góður undirbúningur fyrir þá sem hafa hugsað sér að taka verklegt skútusiglingapróf í skemmtibátanámi Tækniskólans sem og þá sem vilja bara prófa skútusiglingar sér til skemmtunar. 

Á  námskeiðunum sem kennd eru á 25 feta og 42 feta bátana er farið yfir alla þá þætti sem krafist er af þátttakendum í verklegu prófi sem gildir til stjórnunar skemmtibáta (seglbáta) sem eru allt að 24 metra langir.   

 

10 tíma námskeið á 25 feta seglbát

10 tíma námskeið þar sem kennt er í 2-3 klst í senn. Kennslan fer fram á Paradís sem er Hunter, 25 feta seglbátur í eigu Nökkva. Námskeiðstíminn er 1-2 vikur eftir því hvernig vindar blása. Mögulegt er að taka námskeiðið á skemmri tíma í samráði við kennara. Fjöldi nemenda um borð er 2-3 ásamt kennara. 

Verð: 60.000- 

Upplýsingar og skráning: Tryggvi Heimisson 898-3325 / siglingaklubburinn@gmail.com 

Tveggja sólarhringa námskeið á 42 feta skútu.

Tveggja sólarhringa námskeið þar sem farið er í siglingu um Eyjafjörð og búið um borð í skútunni. Æskilegur fjöldi þátttakenda er 3-5 á hvert námskeið. Kennt er á 42 feta Bavaria skútu þar sem vel fer um allt að 7 manns. Innifalið er uppábúið rúm og allur matur til ferðarinnar. 

Þetta námskeið er ekki síður hugsað til að gefa fólki kost á að upplifa skútulífið hvort heldur sem er algerlega óvanir siglingamenn eða þeir sem einhverja reynslu hafa og líka þá sem vilja undirbúa sig fyrir skútuprófið. 

Leiðbeinendur leggja áherslu á að ferðalagið verði ánægjulegt og að skipverjar upplifi örugga og skemmtilega siglingu á Eyjafirði með viðkomu í hinum ýmsu höfnum. 

Dagsetningar í boði: 

30. Maí - 1. júní eða samkvæmt samkomulagi.