Skýrsla stjórnar Nökkva 2025
Aðalfundur félagsins var haldin í mars þar sem stjórn fyrra árs fékk endurkosningu. Formaður Tryggvi Jóhann Heimisson. Aðrir stjórnarmenn Ragnar Rúnar Svavarsson, Kári Ellertsson, Hörður Finnbogason, Sigrún Aradóttir, Tryggvi Már Ingvarsson og Yngvi Pétursson. Stjórnarfundir voru frekar óreglulegir og oft var notast við samskiptaöpp til að leysa mál við störf stjórnar. Góð samvinna var innan stjórnar og verkaskipting skýr.
Reikningar félagsins voru samþykktir án athugasemda og stendur félagið vel fjárhagslega.
Að venju hófst undirbúningur fyrir sumarið strax að loknum aðalfundi. Stjórn setti niður óformlega verk- og starfsáætlun.
Sumarið byrjaði með þó nokkru brasi í kringum björgunar bátafélagsins þar sem hvorugur Rib bátana voru gangfærir, ný endurnýjaður mótor reyndist gallaður og þurfti að flytja hann suður í viðgerð. Mótorinn á Stóra Gráa vildi ekki ganga rétt og fór mikil tími í að finna út hvað var að honum á endanum tókst vélvirkjum á Dalvík að finna út úr því og lagfæra hann.
Paradís fór á sjó um sumarið eftir að vél hennar var tekið upp og eiginlega skipt um allt sem hægt var að skipta um í henni. Í því verkefni reyndist Nökkvi eiga trausta félaga þá Jón Sveinbjörn Vigfússon og Hrafn Jónsson sem eiga miklar þakkir skilið fyrir viðgerðina.
Félagið hélt áfram með sumarnámskeiðin vinsælu. Ísabella Sól Tryggvadóttir hafði fyrir umsjón með námskeiðunum ásamt Alex Pálssyni og Mahaut Matharel. Aðsókn að námskeiðum var þokkaleg og heilt yfir gengu námskeiðin vel og að mestu óhappalaus. Veðrið var allt í lagi þegar leið á sumarið en ekkert sérstakt í Júní og hafði það áhrif á aðsókn. Áfram eru helstu úrlausnarefnin hvernig hægt sé að fjölga þátttakendunum seinni hluta sumars. Félagið hélt áfram að bjóða upp á opin klúbb einn dag í viku undir stjórn Alex fyrir ungmenni 14-20 ára. Einnig var opið á laugardögum.
Áfram var haldið að bæta þjálfun og undirbúning starfsmanna með námskeiðum. Ísabella Sól hefur haft umsjón með þjálfun og kennslu framtíðar þjálfara fyrir Nökkva og Siglingasambandið þannig að hæg eru heimatökin þegar kemur að bættri menntun þjálfara og leiðbeinanda.
Nökkvi fékk í lok sumars alþjóðlega vottun um öryggismál við siglingakennslu, með umsögnina það besta sem gerist í heiminum. Félagið endurnýjaði einnig kennslu vottun sína í siglingum. Einnig voru haldin námskeið í siglingum kjölbáta undir handleiðslu Kára Ellertssonar og Tryggva Heimissonar. Þá var haldið kajak námskeið í umsjón Tryggva Más Ingvarssonar. Kajakæfingar í Glerárlaug í umsjón Tryggva Más Ingvarssonar.
Æfingar og keppni
Félagið bauð upp á fastar æfingar í umsjón Ísabellu Sólar á daginn fyrir þau sem höfðu áhuga á læra keppnis siglingar. Það var góð þátttaka í þeim æfingu og er æfingahópurinn að stækka á ný með mörgum áhugasömum og efnilegum siglurum.
Íslandsmótið í siglingum var haldið í Reykjavík í tveimur hlutum. Nökkvi sendi 5 keppendur bestum árangri Nökkva náði Kveldúlfur Snjóki M. Gunnarsson 4. sæti
Akureyrar og lokamót SÍL var haldið í lok ágúst. Þátttaka var með minna móti miðað við undanfarin ár. Framkvæmd mótsins gekk vel þrátt fyrir að keppnishaldarinn SÍL hafi klúðrað keppnistjóramálum all svakalega en heimamaðurinn Hörður Finnbogason greip inn í málið og kláraði vel að hætti Nökkvamanna. Vindur var fín á mótinu en heldur kalt. Nökkva félagar stóðu sig vel og ber að þakka félögum Nökkva fyrir gott starf og þátttöku. Þetta var stærsta siglingamót sumarsins.
Innanfélagsmót á kjölbátum og í atkeppni á Rs Quest féll því miður niður.
Nökkvi átti einn keppenda á íslandsmótinu á straumkajak Þorgils Magnússon, sem stóð sig ágætlega.
Félagsmál
Áfram var gróska í starfi félagsins. Áfram var lögð áhersla á lengri opnunartíma og fjölga tækifærum til siglinga. Áfram er unnið að því að fjölgar félögu jafnt og þétt og unnið er að því að bæta aðgengi að búnaði félagsins og auðvelda fólki að skrá sig í félagið og greiða félagsgjöld. Það gekk svona upp og ofan en ekki annað að heyra en fólk væri mjög ánægt að geta nýtt sér búnað félagsins.
Félagið endurnýjaði viðurkenninguna sína sem fyrirmyndarfélag ÍSÍ.
Róðrardeild félagsins hefur verið virk og gaman að sjá starf hennar blómstra áfram. Í vor bætum við við einum P&H kajak til viðbótar við hina 2. Stóru fréttirnar eru að straumkajak fólk á norðurland gekk til liðs við Nökkva og vonandi sjáum við þessa íþrótt blómstra á ný innan félagsins
Kjölbátadeildin átti ágætt starfsár. Paradís komst á flot að nýju og náðu nokkrir að læra siglingar á henni í sumar. Kára Ellertsson bauð upp á helgarnámskeið í siglingum á skútunni Nönnu. Félagar hittust í siglinga kaffi í nýju húsi Nökkva einu sinni í mánuði fram að vori og var það vel sótt. Markverðast var þó sigling Aðalsteins Árnasonar þvert yfir Atlantshafið í byrjun vetrar. Sennilega fyrsti Nökkvafélagi sem siglir milli Evrópu og Ameríku. Félagar í Nökkva fóru einnig í árlega haustferð að þessu sinni var siglt til Hríseyjar og gist þar.
Fjármál
Fjármál voru áfram í góðu horfi og stendur félagið traustum fótum. Markmið stjórnar var að halda áfram að nota fjármuni vel og auka tekjur af starfi félagsins. Akureyrarbær studdi vel við félagið ber að hrósa Akureyrarbæ fyrir það. ÍBA situr fast við sinn keip og virðist áfram eingöngu miða lottó styrkja kerfið út frá starfi hefðbundnari íþróttafélaga. Nökkvi hélt áfram samstarf sínu við Landsbankann. Félagið fékk einnig styrki frá KEA, Norðurorku, Íþróttasjóð ríkisins og Akureyrarbæ til að endurnýja búnað.
Húsnæðismál
Húsnæðismál eru í góðu horfi og gæði starfsins hefur batnað með bættri aðstöðu. En á eftir að klára að byggja síðasta hluta hússins með kennslu og félagsaðstöðu sem er aðgengileg öllum. Vinna við nýja bryggju komst á gott skrið og klárast vonandi í vor. Veðrið minnir okkur reglulega á hversu mikilvægt nýja húsið er þegar veður eru ekki hagstæð til siglinga.
Lokaorð
Nú en eitt árið að baki fyrir Nökkva það var bara nokkuð gott. En gleymum ekki að sigla og róa það eftir allt tilgangurinn.