Störf í boði hjá Nökkva.

Siglingaklúbburinn Nökkvi leitar að umsjónarkonu/manni með barnanámskeiðum félagsins sumarið 2023. Um er að ræða 90-100% starf eftir samkomulagi á tímabilinu 1. júní til 11. ágúst. 

Við leitum að ábyrgum einstakling  22 ára eða eldri sem á auðvelt með samskipti við börn og unglinga, getur unnið sjálfstætt og brennandi áhuga á útivist. Þekking og reynsla á siglingum og sjósportum er kostur. Þekking á Sportabler kostur.  Þetta er gefandi og skemmtilegt  starf. 

 

Báðir aðilar vinna í samstarfi við yfirþjálfara og formann félagsins. Góð starfskjör í boði.  Umsóknarfrestur til 27. mars.

Upplýsingar veitir Tryggvi formaður Nökkva í síma 8983325 eftir kl. 14 eða siglingaklubburinn@gmail.com