Félagsgjöld, verum með.

Stjórn Nökkva minnir á félagsgjöld. Nýtt tímabil er að hófst 1. apríl búið er að opna fyrir greiðslu félagsgjalda, ásamt aðstöðu- og geymslugjöldum. Greitt er inn á  abler.io/shop/nokkvi  

Abler heldur jafnframt utan um félagatal Nökkva, þannig að við biðjum þau sem eru nú þegar félagar og vilja vera það áfram að borga gjaldið inn á Abler og styðja þannig áframhaldandi uppbygginu félagsins.  Eða hafa samband við Tryggva formann ef þið viljið frekar fá þetta sjálfkrafa í heimabanka. 

Hvet alla til að vera með og vinna að hagsmunum þeirra sem vilja stunda útvist á Pollinum, sjó, vötnum og ám. 

Nánari upplýsingar á siglingaklubburinn@gmail.com

 

Kveðja Stjórn Nökkva