Fréttir

Siglinganámskeið

Siglinganámskeið og æfingar byrja á fullu í næstu viku 9 júní og verða í umsjón Ísabellu og Alexanders. Áherlsa er lögð á kennslu, leik og fjör í siglingum og kajak. Siglingar eru frábærar til að byggja upp áræðni, þrautsegju og sjálfstæði barna. Einstök upplifun sem börn ættu ekki að missa af. Nökkvi býður líka upp á æfingar í siglingum fyrir allan aldur upplýsingar í siglingaklubburinn@gmail.com.

Skýrsla stjórnar Nökkva

Aðalfundur félagsins var haldin í mars þar sem stjórn fyrra árs fékk endurkosningu. Formaður Tryggvi Jóhann Heimisson. Aðrir stjórnarmenn Ragnar Rúnar Svavarsson, Kári Ellertsson, Hörður Finnbogason, Sigrún Aradóttir, Tryggvi Már Ingvarsson og Yngvi Pétursson. Stjórnarfundir voru frekar óreglulegir og oft var notast við samskiptaöpp til að leysa mál við störf stjórnar. Góð samvinna var innan stjórnar og verkaskipting skýr.

Aðalfundur Nökkva 26. febrúar klukkan 19.30

Aðalfundur Nökkva verður haldinn 26. febrúar n.k. kl. 19.30 í Siglingahöllinni. Venjuleg aðalfundastörf, fræðsla og léttar veitingar í boði. Allir félagar hjartanlega velkomnir. Þau sem hafa áhuga á trúnaðarstörfum fyrir félagið, hafið samband við formann Nökkva gegnum netfang félagsins. Einnig stendur til að skipa laga nefnd til að endurskoða lög félagsins og skila fyrir næsta aðalfund.

Gjaldskrá Nökkva

Hér er gjaldskrá Nökkva: Leiga. Almennt verð. Kajak 3500 kr klst Árabátur 5000 kr klst Seglbretti 4000 kr klst Seglbátur 4000 kr klst Tveggjamanna Kajak 5000 kr klst

Siglinganámskeið á kjölbátum

Siglingaklúbburinn Nökkvi stendur fyrir námskeiðum í skútusiglingum fyrir fullorðna sumarið 2025. Þessi námskeið eru góður undirbúningur fyrir þá sem hafa hugsað sér að taka verklegt skútusiglingapróf í skemmtibátanámi Tækniskólans sem og þá sem vilja bara prófa skútusiglingar sér til skemmtunar. Á námskeiðunum sem kennd eru á 25 feta og 42 feta bátana er farið yfir alla þá þætti sem krafist er af þátttakendum í verklegu prófi sem gildir til stjórnunar skemmtibáta (seglbáta) sem eru allt að 24 metra langir.

Aðalfundur Nökkva

Aðalfundur Nökkva verður haldinn 11. mars 2025 kl. 19.30 í Siglingahöllinni við Drottingarbraut. Venjulega aðalfundastörf. Allir sem vilja taka að sér trúnaðarstörf fyrir félagið geta haft samband við Tryggva formann eða boðið sig fram á fundinum.

Óvænt heimsókn

Krakkarnir á síðasta siglinganámskeiði sumarsins fengu óvænta en skemmtilega heimsókn á síðasta degi námskeiðsins. Hnúfubakur sem hefur verið reglulegur gestur á Pollinum sl. vikur tók sundsprett með námskeiðskrökkunum. Það var ekki amarlegt að enda velheppnað námskeiðs sumar með slíku ævintýri og upplifun. Pollurinn er jú staðurinn sem ævintýrin gerast. Myndina tók Melanie úr hvalaskoðunarskipi sem var á staðnum.

Akureyrar- og lokamót SÍL 2024

Akureyrar og lokamót SÍL kæna 24. ágúst 2024 á Akureyri Siglingaklúbburinn Nökkvi Tilkynning um keppni 1. Reglur 1.1 Keppt verður samkvæmt: gildandi kappsiglingareglum WS 1.2 Keppnin verður ekki haldin ef keppnisstjórn hefur ekki yfirsjón yfir keppnissvæðið vegna skerðingar á skyggni. Keppnisstjórn miðar við að keppni fari fram við vindstyrk á bilinu 2-10 m/sek hjá yngri en 16 ára en 2-13 m/sek hjá eldri siglurum, samkvæmt mælingum ISAVIA á Akureyrarflugvelli ásamt mælingum keppinsstjórnar.

Íslandsmeistaramóti í siglingum kæna 2024

Íslandsmeistaramóti í siglingum á kænum er lokið. Keppt var í fimm flokkum að þessu sinni Optimist, Rs Tera, ILCA 4, ILCA 6 og Opnum flokk. Mótið hófst á fimmtudegi og lauk á laugardaginn samtals voru sigldar 8 umferðir sem er hámark umferða. Mótið gekk vel fyrir sig og var góður keppnisvindur alla daga. Úrslit voru eftirfarandi

Íslandsmót kæna 8-11 ágúst 2024

Íslandsmót á kænum verður haldið af Siglingaklúbbnum Nökkva á Akureyri dagana 8. til 11. ágúst 2024. Skráning er nú hafinn á Abler.io Nánari upplýsingar með því að smella á fréttina. Hlökkum til að sjá ykkur.