Siglinganámskeið og æfingar byrja á fullu í næstu viku 9 júní og verða í umsjón Ísabellu og Alex. Áherlsa er lögð á kennslu, leik og fjör í siglingum og kajak. Siglingar eru frábært tækifæri til að auka áræðni, þrautsegju og sjálfstæði barna.
Nökkvi býður líka upp á æfingar í siglingum fyrir allan aldur upplýsingar í siglingaklubburinn@gmail.com.
Vikunámskeið kostar 16.000 kr.
Ef keyptar eru 3 vikur er hægt að fá 4 vikuna frítt. Til að nýta 4 vikuna þarfa að taka það fram í athugasemdum þegar gengið er frá skáningum og greiðslu einnig að taka fram hvaða viku á að nýta á sumrinu sem 4. viku.
Allt sumarið (8 vikur) kostar kr. 65.000
Skráning í Abler er fyrir þá sem tengjast styrkjakerfi Akureyrarbæjar og vilja nýta sér frístundastyrki. Þarf að skrá sig inn, velja viðkomandi tímabil vegna námskeiða og ganga frá greiðslu á námskeiðum. Það getur komið fyrir að hafa þurfi samband við forstöðumann þegar virkja þarf systkinaafslátt eða borga fyrir aukadaga eða styttri tíma.
Skráning er hafin á abler.io/shop/nokkvi