Fréttir

Félagsgjöld, verum með.

Stjórn Nökkva minnir á félagsgjöld. Nýtt tímabil er að hófst 1. apríl búið er að opna fyrir greiðslu félagsgjalda, ásamt aðstöðu- og geymslugjöldum. Greitt er inn á abler.io/shop/nokkvi Abler heldur jafnframt utan um félagatal Nökkva, þannig að við biðjum þau sem eru nú þegar félagar og vilja vera það áfram að borga gjaldið inn á Abler og styðja þannig áframhaldandi uppbygginu félagsins. Eða hafa samband við Tryggva formann ef þið viljið frekar fá þetta sjálfkrafa í heimabanka. Hvet alla til að vera með og vinna að hagsmunum þeirra sem vilja stunda útvist á Pollinum, sjó, vötnum og ám. Nánari upplýsingar á siglingaklubburinn@gmail.com

Siglinganámskeið

Siglinganámskeið og æfingar byrja á fullu í næstu viku 9 júní og verða í umsjón Ísabellu og Alexanders. Áherlsa er lögð á kennslu, leik og fjör í siglingum og kajak. Siglingar eru frábærar til að byggja upp áræðni, þrautsegju og sjálfstæði barna. Einstök upplifun sem börn ættu ekki að missa af. Nökkvi býður líka upp á æfingar í siglingum fyrir allan aldur upplýsingar í siglingaklubburinn@gmail.com.