21.07.2026
Loksins, loksins er komið að siglinganámskeiðum á kjölbátum, hefjast jafnóðum og næg þátttaka fæst.
10 tíma námskeið þar sem kennt er í 2-3 klst í senn. Kennslan fer fram á Paradís sem er Hunter 25 feta seglbátur í eigu Nökkva. Námskeiðstíminn er 1-2 vikur eftir því hvernig vindar blása. Mögulegt er að taka námskeiðið á skemmri tíma í samráði við kennara. Fjöldi nemenda um borð er 2-3 ásamt kennara.
Verð: 60.000-
Upplýsingar og skráning: Tryggvi Heimisson 898-3325 / siglingaklubburinn@gmail.com
06.06.2026
Stjórn Nökkva minnir á félagsgjöld. Nýtt tímabil er að hófst 1. apríl búið er að opna fyrir greiðslu félagsgjalda, ásamt aðstöðu- og geymslugjöldum. Greitt er inn á abler.io/shop/nokkvi
Abler heldur jafnframt utan um félagatal Nökkva, þannig að við biðjum þau sem eru nú þegar félagar og vilja vera það áfram að borga gjaldið inn á Abler og styðja þannig áframhaldandi uppbygginu félagsins. Eða hafa samband við Tryggva formann ef þið viljið frekar fá þetta sjálfkrafa í heimabanka.
Hvet alla til að vera með og vinna að hagsmunum þeirra sem vilja stunda útvist á Pollinum, sjó, vötnum og ám.
Nánari upplýsingar á siglingaklubburinn@gmail.com
05.06.2026
Siglinganámskeið og æfingar byrja á fullu í næstu viku 9 júní og verða í umsjón Ísabellu og Alexanders. Áherlsa er lögð á kennslu, leik og fjör í siglingum og kajak. Siglingar eru frábærar til að byggja upp áræðni, þrautsegju og sjálfstæði barna. Einstök upplifun sem börn ættu ekki að missa af.
Nökkvi býður líka upp á æfingar í siglingum fyrir allan aldur upplýsingar í siglingaklubburinn@gmail.com.
26.02.2026
Aðalfundur félagsins var haldin í mars þar sem stjórn fyrra árs fékk endurkosningu. Formaður Tryggvi Jóhann Heimisson. Aðrir stjórnarmenn Ragnar Rúnar Svavarsson, Kári Ellertsson, Hörður Finnbogason, Sigrún Aradóttir, Tryggvi Már Ingvarsson og Yngvi Pétursson. Stjórnarfundir voru frekar óreglulegir og oft var notast við samskiptaöpp til að leysa mál við störf stjórnar. Góð samvinna var innan stjórnar og verkaskipting skýr.
15.02.2026
Aðalfundur Nökkva verður haldinn 26. febrúar n.k. kl. 19.30 í Siglingahöllinni. Venjuleg aðalfundastörf, fræðsla og léttar veitingar í boði. Allir félagar hjartanlega velkomnir. Þau sem hafa áhuga á trúnaðarstörfum fyrir félagið, hafið samband við formann Nökkva gegnum netfang félagsins. Einnig stendur til að skipa laga nefnd til að endurskoða lög félagsins og skila fyrir næsta aðalfund.